| Haustfundur SATS 2006 |
|
Dagskrá Haustfundar SATS og Félags Byggingarfulltrúa 2006
Haldinn á Grand Hótel
0900-0910 Fundarsetning.
0910-0930 Frumvarp til skiplagslaga Ingimar Sigurðsson skrifstofustjóri umhverfisráðuneyti. formaður nefndar um endurskoðun mannvirkjaþáttar skipulags- og byggingalaga. 0930-0950 Frumvarp til skiplagslaga Helstu breytingar í frumvarpi til skipulagslaga
0950-1015 Kaffihlé.
1015-1035 Ný mannvirkjalög og skipulagslög
1035 – 1055 Ný mannvirkjalög og skipulagslög Fyrirlesari óviss.
1115-1135 Umhverfismat samgönguáætlunar 2007 til 2018:
Samkvæmt lögum nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana hefur verið unnið umhverfismat fyrir samgönguáætlun 2007 til 2018 þar sem gerð er grein fyrir helstu afleiðingum áætlunarinnar á umhverfi og samfélag. Skv. matinu stafa helstu umhverfisáhrifin af greiðari samgöngum, bættu öryggi og betra umhverfi. (umsjónarmaður erindis er Eiríkur Bjarnason)
1135 – 1155 Landupplýsingar Þorbjörg Kjartansdóttir framkvæmdastjóri LÍSU samtaka um landupplýsingar. Landupplýsingar - vannýtt auðlind
1155-1300 Hádegisverður Kynning á One systems Ingimar Arndal framkvæmdastjóri hjá One systems kynnir nýja lausn í skjalamálum sveitarfélaga og möguleikum við tengingu við landupplýsingar.
1320-1340 Landupplýsingar Sigbjörn Jónsson framkvæmdastjóri Snertils. Landupplýsingar tengdar Interneti, nýjungar og framtíð: Hvernig sjá sveitarfélög landupplýsingar í framtíðinni.
1340-1400 Úrgangssöfnun og förgun, endurnýting og endurvinnsla. Stefán Gíslason Áhrifavaldar á þátttöku fólks við bætta umgengni um úrgang.
1400-1440 Úrgangssöfnun og förgun, endurnýting og endurvinnsla. Elías Ólafsson stjórnarformaður Gámaþjónustunnar Nýjungar og bætt þjónusta við meðhöndlun sorps hjá Gámaþjónustunni.
1440 – 1500 Kaffi
1500 – 1730 Skoðunarferð: Farið í skoðunarferð á starfsstöð Gámþjónustunnar þar sem fyrirtækið og starfsemi þess verður kynnt og boðnar veitingar.
1600 – 1800 Skoðunarferð fyrir maka Boðið verður upp á ferð fyrir maka og að þessu sinni verður farið Gallerí Thors í Hafnarfirði, en þar eru 10 listakonur sem sýna og selja list sína. Boðið verður upp á léttar veitingar og að lokinni skoðunarferð verður öllum ekið til síns heima.
1930-2000 Fordrykkur í Sunnusal Hótel Sögu í boði Snertils
Boðið verður upp á skemmtidagskrá undir borðum að hætti SATS Dagskráin verður í höndum Spaugstofumanna SATS.
Það er von stjórnar SATS að allir finni eitthvað við sitt hæfi á fundinum og taki nú þegar 24. nóvember frá í dagbókinni og mæti ferskir til leiks á haustfundinn.
Þátttökugjald: fundur, kaffi hádegismatur, ferðir kr. 7.000.-
Þátttökugjald: fundur, kaffi hádegismatur, kvöldverður, ferðir, án maka kr. 15.000.-
Þátttökugjald: fundur, kaffi hádegismatur, kvöldverður ferðir, með maka kr. 21.000.- |


