| Haustfundur SATS 2007 |
|
Haustfundur SATS 2007 Fundur haldinn á Hótel Sögu, Harvard salur. 09.00-09.10 Fundarsetning. Fundarstjórar: Helga Stefánsdóttir f.h. Svanlaugur Sveinsson e.h. Kosning fundarritara Orkan, auðlind Íslands Ísland er eitt orkuríkasta land heimsins, ef ekki það allra orkuríkasta. Orkan býr í fallvötnunum, í jarðhitanum, í vindinum og síðast en ekki síst í fólkinu sjálfu. Orkumál hafa verið ofarlega á baugi undanfarin misseri og um fátt verið meira deilt. Þar hafa togast á ýmsir hagsmunir um það hvernig nýta eigi þessa auðlind okkar og hvort það megi kosta einhverjar fórnir á móti. Færri þekkja þó alla þá þætti sem ákvarðanataka um nýtingu þessarar orku byggir á. Hér verður reynt að varpa ljósi á hverjir koma að þessari ákvarðanatöku. Í fyrstu fjórum erindum á þessum haustfundi verður leitast við að rekja slóðina frá orkulindinni, gegnum flutningskerfið og til neytandans. 09.10-09.30 Orkuöflun. Helgi Bjarnason verkefnastjóri verkfræði- og framkvæmdasviðs Landsvirkjunar Landsvirkjun er elsta, og var lengi vel eina orkufyrirtæki landsins. Rætt verður um starfsemi og helstu verkefni Landsvirkjunar, stefnu og helstu viðmið orkufyrirtækja varðandi nýtingu orkunnar, arðsemi, umhverfismál, rammaáætlun um framkvæmdaröð virkjana o. fl. 09.30-09.55 Orkuflutningur. Árni Stefánsson deildarstjóri eignasvið Landsnets 09.55-10.15 Kaffihlé. 10.15-10.35 Lagaramminn. Stefán Thors skipulagstjóri Um orkuvinnslu og orkuflutning gilda margvísleg lög og reglur. Mikill hluti þeirra er á borði Skipulagsstofnunar. Rakinn verður lagarammi þessara mála hvað varðar skipulag, umhverfismat, kæruferli o.fl. 10.35-11.0 Aðkoma sveitarfélaganna . Dr. Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri skipulags– og byggingarsviðs Hafnarfjarðar Sveitarfélögin eru móttakendur þessarar orku í einni eða annarri mynd. Gerð verður grein fyrir sjónarmiðum sveitarfélaga, hagsmunum, tengslum við landnotkunaráætlanir o.fl. Dæmi tekin af NV- og SV-landi. 11.00-11.35 Umræður. 11.35-11.55 Gæðakerfi verkfræðistofa Kristinn Guðjónsson gæðastjóri hjá Hnit hf. verkfræðistofu Gæðakerfi á verkfræðistofum er orðið mikilvægt verkfæri í daglegum rekstri verkfræðistofa og hefur þörfin verið að aukast með umfangsmeiri verkefnum. Í stuttu máli má segja að aðaláhersla gæðakerfis liggi í undirbúningi í upphafi og skipulagðri verkbyrjun, áætlanagerð og eftirfylgni á þeim, skjalastýringu og annarri meðhöndlun gagna, ásamt rýni niðurstaðna og verklokum. 11.55-13.00 Hádegisverður Kristján Ingvi Ólason Hnit verkfræðistofu Framleiðsla á forsteyptum húseiningum hefur aukist stórlega á Íslandi á síðustu árum og eru tengingar á milli forsteyptra veggeininga iðulega með sléttum köntum. Slíkar tengingar eru þó ætíð með tenntum köntum í nágrannalöndum okkar, þrátt fyrir að þar sé lárétt álag frá vindi og jarðskjálfta töluvert lægra en hér á landi. Greint verður frá niðurstöðum samanburðarrannsóknar á sléttum og tenntum tengingum. 13.20-13.40 CORINE landflokkunin á Íslandi Kolbeinn Árnason jarðeðlisfræðingur hjá Landmælingum Íslands Fjallað verður um CORINE verkefnið (CORINE: Coordination of Information on the the Environment, eða Samræming umhverfisupplýsinga í Evrópu á íslensku), sem felur í sér flokkun lands med sömu aðferðum og á sama tíma í öllum löndum Evrópu. Tilgangur verkefnisins er að afla sambærilegra upplýsinga um landnýtingu/landgerðir í öllum Evrópulöndum og koma upp gagnagrunni til þess ad fylgjast med breytingum á landnýtingu í álfunni med tímanum, en slíkur gagnagrunnur yrði grundvöllur fyrir umhverfisstjórnun í framtídinni. CORINE landflokkunin fór fyrst fram í kringum 1990 í Vestur-Evrópu, en Ísland gerðist þátttakandi í verkefninu á síðasta ári. 13.40-14.40 Tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð í Reykjavík Stefán Hermannson verkefnisstjóri og Tryggvi Jónsson ÍAV. Gerð verður grein fyrir vinnu við undirbúning hönnun og framkvæmdir við byggingu Tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar sem verið er að reisa á austurbakka Reykavíkurhafnar. 1440 – 1500 Kaffi 1500 – 1730 Skoðunarferð og móttaka: Farið verður í skoðunarferð í stjórnstöð Landsnets í Öskjuhlíð, en þaðan er öllum fluttningsvirkjum og virkjunum á landinu stjórnað. 1930-2000 Fordrykkur í Yale sal Hótel Sögu í boði Landsvirkjunar. 20:00 - Sameiginlegur kvöldverður að hætti SATS og FB í Yale sal Hótel Sögu Boðið verður upp á skemmtidagskrá undir borðum að hætti SATS. Dagskráin verður í höndum Spaugstofumanna SATS. |


