Vorfundur Samtaka tæknimanna sveitarfélaga SATS

og Félags byggingarfulltrúa

á Hvolsvelli 6. og 7. maí 2010.

Vorfundur SATS og Félags byggingarfulltrúa verður haldinn í Hvolnum á Hvolsvelli dagana 6. og 7. maí 2010.

Dagskrá

Fimmtudagur 6. maí

10.00 Skráning.

10:20 Ávarp formans

Erlendur Árni Hjálmarsson formaður SATS setur fundinn.

10:30

Fyrsta sameiginlega hæðarkerfið fyrir Ísland

Uppbygging á einu sameiginlegu hæðarkerfi fyrir allt Íslands hefur verið eitt af mikilvægustu verkefnum Landmælinga Íslands undanfarin ár. Samræmt hæðarkerfi skapar grundvöll fyrir alla að vinna í sömu hæðarviðmiðun sem felur í augljósan ávinning þar sem hætta á skekkjum minnkar mjög mikið auk tímasparnaðar. Í erindinu verður nýja hæðarkerfið kynnt og greint frá hönnun, úrvinnslu og útreikningum á hæðarkerfinu. Einnig verður fjallað um þær gildrur sem menn verða að varast þegar notast er við GPS-tækni við hæðarflutning.

Framsögumaður: Guðmundur Valsson,

mælingaverkfræðingur hjá Landmælingum Íslands

Fyrirspurnir.

11:00

Vöktun og viðhald á landshnitakerfi Íslands

Eitt af lögbundnum verkefnum Landmælinga Íslands er viðhald og vöktun á landshnitakerfi landsins. Vegna jarðfræðilegrar sérstöðu Íslands þurfum við að glíma við meiri breytingar í legu og hæð en gengur og gerist í öðrum löndum. Uppbygging jarðstöðvanets er mikilvægur þáttur í viðhaldi og vöktun á landshnita- og hæðarkerfinu. Vel hannað jarðstöðvanet þjónar einnig vísindasamfélaginu við rannsóknir, auk þess sem það eykur áreiðanleika og afköst við landmælingar. Í erindinu verður fjallað um hvernig Landmælingar Íslands hafa staðið að vöktun og viðhaldi þess.

Fyrirlesari: Þórarinn Sigurðsson, mælingaverkfræðingur hjá Landmælingum Íslands.

Fyrirspurnir.

11:30 Umhverfismál sveitarfélaga í breyttu starfsumhverfi. Garðyrkju- og umhverfisstjórar fjalla um breytt starfsumhverfi við breyttar aðstæður í þjóðfélaginu.

 

 

Fyrirlesari: Stjórn SAMGUS

12:00 Hádegismatur

 13:30 Aðalfundur SATS

 

Aðalfundur Samtaka tæknimanna sveitarfélaga, SATS verður haldinn í Hvolnum dagskrá samkvæmt lögum félagsins

Aðalfundur Félags byggingarfulltrúa verður haldinn í Hvolnum dagskrá samkvæmt lögum félagsins.

15:30 Kaffi

15.45 Skoðunarferð og heimsóknir

Farið verður í skoðunarferð með allan hópinn í glerverksmiðjuna Samverk á Hellu að viðbættu atriði sem ekki verður greint frá að sinni.

18.00 Komið heim úr skoðunarferð – Frjáls tími

19:30 Fordrykkur

20:00 Kvöldverður að hætti SATS og FB á Hótel Hvolsvelli.

Kvöldverður verður að hætti SATS og FB í umsjón stjórna SATS og FB.

Stjórnir félaganna leiða fjöldasöng og Fb sér um skemmtiatriði.

Föstudagur 7. maí

08:00 Morgunverður

Morgunverður borinn fram í morgunverðarsal.

09:00 Umferðaröryggisáætlanir sveitarfélaga.

Fjallað verður um leiðbeiningar um umferðaröryggisáætlanir sveitarfélaga sem unnar voru af Mannviti í samvinnu við Umferðarstofu og Vegagerðina. Leiðbeiningarnar eru hugsaðar sem uppflettirit fyrir starfsmenn sveitarfélaga og aðra sem koma að gerð umferðaröryggisáætlana. Vinnuferli við mótun og framkvæmd umferðaröryggisáætlunar verður kynnt og dæmi tekin um aðgerðir á þjóðvegum í þéttbýli sem stuðla að auknu umferðaröryggi.

Fyrirlesarar: Þorsteinn R. Hermannsson umferðarverkfræðingur,

Mannviti verkfræðistofu og Sigurður Helgason Umferðarstofu.

 Fyrirspurnir og umræður.

 

09:00 NKS- fundur. NKS møde.

Fundur verður haldinn í Nordisk Kommunalteknisk Samarbetskommitté.

Fund þennan sitja tveir fulltrúar SATS og fulltrúar frá hinum Norðurlöndunum.

Áætlað er að fundurinn standi til kl. 12.00

09.30 Skoðunarferð fyrir maka og erlenda gesti fram að hádegi.

Farið verður í skoðunarferð með gesti í umsjá heimamanna.

Gunnarsholt, reiðskemma og etv. fleira.

Áætluð heimkoma kl. 11.30.

09:30 Kynning á frumvörpum um tvo nýja staðla.

ÍST:201X Hæð og hæðarskráning bygginga.

ÍST:201Y Herbergjafjöldi íbúða.

Framsögumaður,

MS

Fyrirspurnir og umræður:

10.00 Fasteignaskráning.

Heimilsföng - Staðföng Skráning Skattflokka reglugerð nr. 1160 / 2005

Framsögumaður,

MS

Fyrirspurnir og umræður:

10.30 Kaffi

10.45 Lóðaúthlutanir

Lóðaúthlutanir og skilmálar, út frá úrskurði Samkeppnisstofnunar.

Framsögumaður,

MS

Fyrirspurnir og umræður:

11.15 Ný útgáfa af Stjóranum (MainManager) fyrir sveitarfélög

Kynnt verður útgáfa 10 af Stjóranum með áherslu á þarfir tæknimanna hjá sveitarfélögum.

Framsögumaður: Björn H. Skúlason

Sviðsstjóri verkefnastjórnunar hjá ICEconsult

Fyrirspurnir og umræður:

11:45 Ný útgáfa af Stjóranum (MainManager) fyrir sveitarfélög

Stjórinn er verkbeiðna – og skráningarforrit sem nokkur sveitarfélög hafa tekið í notkun.

Kynnt verður notkun Reykjavíkurborgar á kerfinu.

Framsögumaður: Óli Jón Hertervig Deildarstjóri eignaumsýsludeildar hjá Framkvæmda- og eignasviði

12:15 Hádegisverður á Hótel Hvolsvelli.

13:15 Sjónarmið heimamanna.

Fulltrúi sveitarfélaganna á svæðinu gerir grein fyrir sjónarmiðum sveitarstjóra varðandi skipulags - og samgöngumál á svæðinu.

Fyrispurnir og umræður:

14:00 Skoðunarferð og heimsóknir.

Farið verður í skoðunarferð með allan hópinn í Sláturfélag Suðurlands á Hvolsvelli, Bakkafjöru- Landeyjahöfn, grjótnám vegna Bakkafjöru og etv. keyrt heim upp með Stóra Dímon um Fljótshlíð og heim á hótel.

17.30 Komið heim úr skoðunarferð – Frjáls tími

20:00 Hátíðarkvöldverður á Hótel Hvolsvelli í boði sveitarstjórnar Rángárþings

Ræðumaður kvöldsins verður

____________________________.

Dagskrá að öðru leyti skipulögð af heimamönnum.

Laugardagur 8. maí

07:00 Morgunverður

07:30 Brottför frá hóteli.

 

 

 

 

 

14:30 Aðalfundur Félags Byggingarfulltrúa

Skráðu þig í SATS

Nafn: Kennitala: Heimilisfang: Vinnustaður: meira

Skráðu þig á póstlistann

Nafn: Netfang: