Lög SATS
LÖG FYRIR SAMTÖK TÆKNIMANNA SVEITARFÉLAGA.
1. gr.
Tilgangur og markmið.
"Félagið er samtök tæknimanna, sem starfa hjá sveitarfélagum og hefur þann tilgang að:
-
1. Stuðla að þróun tæknimálefna sveitarfélaga á Íslandi.
-
2. Auka almennan skilning á þýðingu tæknisviðs sveitarfélaganna.
-
3. Vinna að og aukinni fagþekkingu og símenntun félagsmanna.
-
4. Byggja upp samvinnu við aðila sem vinna að tæknimálum sveitarfélaga og menntunarmálum tæknimanna, s.s. Samtök ísl. Sveitarfélaga og endur-menntunarstofnun H.Í.
-
5. Koma á tjáskiptum um fagleg málefni sveitarfélaga meðal félagsmanna, t.d. með fundarhöldum og umfjöllun í fjölmiðlum. Félagið tekur ekki afstöðu til launa né annara starfskjara félagsmanna.
2. gr.
Félagsmenn.
Félagsmenn geta þeir verið sem eru tæknimenntaðir starfsmenn tæknideilda sveitarfélaga, sameiginlegra rekinna stofnana sveitarfélaga, hlutafélaga sem starfa á sama sviði og eru í eigu sveitarfélaga eða sambærilegra stofnana á vegum ríkisins.
Aðalfundur getur heimilað þáttöku annara aðila í starfi félagsins.
Félagar sem láta af störfum fyrir aldurs sakir geta haldið aukaaðild að félaginu.
3. gr.
Réttindi og skyldur félagsmanna.
Félagar hafa aðgang að öllum fundum félagsins með málfrelsi, tillögu- eða atkvæðisrétti skv. venjulegum fundarsköpum.
Félagsmönnum ber að leggja fram sérþekkingu sína í þágu félagsins þegar stjórn þess óskar, t.d. með þátttöku í nefndarstörfum og erindaflutningi á fundum og/eða námskeiðum. félögum er skylt að taka kjöri til trúnaðarstarfa, en geta beðist undan endurkosningu.
Félagar skulu greiða árgjöld skv. ákvörðun aðalfundar.
Aukaaðilar skv. síðustu málsgrein 2. gr. greiða ekki félagsgjald og eru ekki atkvæðisbærir á aðalfundi.
4. gr.
Stjórn félagsins.
Stjórn félagsins er kosin á aðalfundi og skal hún skipuð 5. mönnum; formanni, ritara, gjaldkera, varaformanni og meðstjórnanda.
Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum, en þó skal formaður kosinn sérstaklega.
Formaður skal kosinn til tveggja ára. Aðrir stjórnarmenn skulu einnig kosnir til tveggja ára, þó þannig að einungis sé kosið um tvo í senn. Við fyrstu kosningar skv. þessum lögum skal kjósa tvo meðstjórnendur til eins árs og tvo til tveggja ára.
Stjórnin kemur fram fyrir hönd félagsins og getur hún tekið til afgreiðslu mál og erindi sem berast félaginu frá öðrum aðilum.
Stjórn félagsins getur skipað nefndir til þess að sinna ákveðnum verkefnum innan félagsins.
Stjórnin undirbýr alla fundi félagsins og sér um boðun þeirra.
Við kosningu í embætti á vegum félagsins skal þess gætt, að hinar ýmsu stærðir sveitarfélaga eigi fulltrúa og að jafnvægi sé milli landshluta og starfsgreina. Jafnframt skal leitast við, að eðlileg endurnýjun eigi sér stað í stjórninni.
5. gr.
Aðalfundur.
Aðalfundur er æðsta stjórn félagsins og skal hann haldinn árlega, eigi síðar en 20. mai ár hvert.
Erindi sem óskast flutt sérstaklega á dagskrá aðalfundar skulu berast stjórn félagsins a.m.k. 6 vikum fyrir aðalfund.
Aðalfund skal boða með dagskrá með 30. daga fyrirvara og sendast ölum félögum. Aðalfundur er löglegur, sé löglega til hans boðað.
Á dagskrá aðalfundar skal meðal annars vera:
- 1) Setning aðalfundar.
- 2) Kosning fundarstjóra.
- 3) Skýrsla stjórnar.
- 4) Reikningar félagsins
- 5) Kosning formanns og stjórnar auk tveggja endurskoðenda
- 6) Ákveðið árgjald fyrir næsta starfsár.
- 7) Ákveða fjárhags- og starfsáætlun fyrir næsta starfsár.
- 8) Erindi sem borist hafa.
- 9) Ákvörðun um tíma og stað fyrir næsta aðalfund.
- 10) Önnur mál.
Fundi skal stjórnað skv. venjulegum fundarsköpum.
6. gr.
Lagabreytingar.
Til breytinga á lögum þessum þarf samþykki 2/3 viðstaddra félagsmanna á aðalfundi. Önnur mál eru til lykta leidd með einföldum meirihluta.
7. gr
Samtök tæknimanna sveitarfélaga eru aðili að norrænu samstarfi hliðstæðra félaga á norðurlöndunum, -Nordisk Kommunalteknisk Samarbejdskomite-, og tekur þátt í því samstarfi eftir því sem efni og aðstæður leyfa á hverjum tíma.
8. gr.
Verði félagið lagt niður, skulu gögn þess og eigur afhentar sambandi ísl. sveitarfélaga til varðveislu.
Félagið telst vera lagt niður séu ekki boðaðir fundir á vegum þess í 2 ár samfleitt.
Samþykkt á aðalfundi á Akranesi, 8. mai 1998.